Þjónustuleiðir

Macros námskeið - Lífstílspakkinn
Náðu meiri árangri með auknu aðhaldi í æfingum og mataræði með næringarráðgjöf. Þú lærir að telja Macros og sjá hvort það vanti upp á næringarefnin. Vikulegt check in, 3 fjarfundir og video fræðsluefni með fyrirlestrum um heilsu, næringu og hvernig maður nýtist við MyFitnessPal.
Sigrún Bjarglind, alla jafna kölluð Sissa, er BSc Íþróttafræðingur með viðbótardiplómu í Lýðheilsuvísindum. Auk þess að starfa sem slíkur rekur hún Hundalífstíl sem sérhæfir sig í hundaatferlisráðgjöf og aðskilnaðarþjálfun.
Sissa hefur unnið við þjálfun barna og fullorðinna, fatlaðra og ófatlaðra til fjölda ára. Hún hefur kennt ýmisslegt í gegnum tíðina, fótbolta, íþróttaskóla barnanna, ungbarnasund, hóptíma, liðkunartíma, súperþrek í vatni, vatnsþrek, einkaþjálfun og séð um mælingar.
Seinustu ár hefur hún starfað hjá Heilsuborg sem síðar varð að og er í dag Heilsuklasinn.


Fylgstu með á Instagram




























